Philippus Theophrastus Aureolus Bombastus von Hohenheim, öðru nafni Paracelsus, fæddist í Einsiedeln-héraði í Sviss árið 1493. Skírnarnafn hans var Philippus Theophrastus. Nafnið Aureolus tók hann sér síðar. Faðir hans, Wilhelm Bombastus von Hohenheim, var læknir og mikill áhugamaður um efnafræði og gullgerðarlist...
Hæsti tindur Aserbaídsjan kallast Bazardüzü Dağı og er í Kákasusfjöllum, rétt við landamæri Aserbaídsjan og Rússlands. Þessi tindur nær upp í 4485 m hæð og er því meira en helmingi hærri en Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur Íslands.
Bazardüzü Dağı nær upp í 4485 metra hæð.
Það er ekki gott að s...
Frá upphafi hefur mannfræði lagt áherslu á hugtakið menningu (e. culture) sem huglægt greiningartæki og rannsakað merkingu þess og hinar ýmsu birtingarmyndir. Bandaríski mannfræðingurinn Clifford Geertz er hvað þekktastur fyrir hugmyndir sínar, umfjallanir og útskýringar á þessu hugtaki, en hann leit svo á að menn...
Frá þessu er sagt í svari Hjalta Hugasonar við spurningunni Átti Jesús konu og er vitað hvað hún hét? Þar segir Hjalti:Um það leyti sem Jesús varð fullorðinn (um 30 ára aldur) tók hann að ferðast um og kenna fólki. Slíkir farandkennarar eða ferðaprédikarar sem voru margir á þessum tíma gengu almennt ekki í hj...
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er pipar og hvernig verður hann til? er pipar krydd úr berjum piparjurtarinnar Piper nigrum. Til eru nokkrar gerðir af pipar og fer litur og bragð eftir því hvernig berin eru meðhöndluð.
Piparjurtin er upprunninn í Suður- og Suðaustur-Asíu og er meðal elstu krydd...
Liðurinn milli upphandleggs- og framhandleggsbeins handarbaksmegin hét í fornu máli ölnbogi. Nafnið er leitt af heiti framhandleggsbeinsins sem kallast öln og sett saman úr öln og bogi.
Til eru hliðarmyndir af ölnbogi eins og olnbogi, olbogi og albogi. Þær eru allar gamlar í málinu en olbogi er nú einkum notað...
Þótt fagurfræði sé á íslenzku kennd við fegurð, er það hugtak þó frekar sjaldgæft í fræðilegri umræðu seinni tíma. Menn tala frekar um form eða listgildi.
Það fer eftir grunnviðhorfum í frumspeki og þekkingarfræði, hverjum augum menn líta fegurðina. Þeir sem telja að við höfum aðgang að einhverju sem nefnist r...
Hestar (Equus caballus) eru hófdýr af ættinni Equidea. Í fornöld tóku menn hestinn í sína þjónustu enda er hann auðtaminn. Í dag eru til ótal ræktunarafbrigði af þessu gresjudýri. Í fyrstu notuðu menn hesta sem veiðidýr. Í eina tíð lifðu ættbálkar manna af indóevrópskum uppruna á sléttum sem nú tilheyra sunnan...
Fimmarma stjarna, pentagram eða fimmyddingur er mynduð úr fimm jafnlöngum strikum sem dregin eru þannig að eitt horn stjörnunnar vísar beint upp, tvö til hvorrar hliðar og tvö á ská niður á við. Pentagramið er einnig nefnt á latínu: Pentangulum eða pentaculum, signum pythagoricum (tákn Pýþagórasar), signum Hygieia...
Spurnigin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hver var staða Íslands gagnvart Danmörku meðan landið var hluti af Danmörku? Var Ísland nýlenda, hjálenda eða eitthvað annað?
Staða Íslands gagnvart Danmörku var alla tíð frekar óljós og umdeild, og breyttist verulega í tímans rás. Upphaflega komst landið undir Danak...
Samkvæmt gömlum sögnum er nafnið keisaraskurður (e. cesarean/cesarian/caesarean section, cesarean; da. kejsersnit) komið til af því að hinn rómverski Júlíus Sesar var tekinn með slíkum skurði þegar hann fæddist.
Vísbendingar eru þó um að móðir hans hafi enn verið á lífi þegar hann var fullorðinn. Þar sem nær ...
Útilokað er að gefa einhlítt svar við þessari spurningu, því að merking beggja hugtakanna er óljós og hefur breyst í tímans rás. Bókstafleg merking orðsins nýlenda er einfaldlega nýtt land, og vísaði það gjarnan til lands sem brotið er undir nýja byggð eða ræktun. Þessi merking kemur meðal annars fram í bæjarnafni...
Til þess að geta svarað þessari spurningu er nauðsynlegt að fara yfir það hvað salt er og hvað er krydd.
Salt
Saltið sem við notum í matinn okkar er steinefni, natrínklóríð NaCl, og hefur verið notað við matargerð allt síðan á steinöld. Samkvæmt Íslenskri orðabók er salt "efni (natrínklóríð) með sérkennilegt ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Köllum við borð þessu nafni því við borðum við það eða segjumst við “borða” því við borðum við borð? Hvort er nefnt eftir hverju?
Sögnin að borða þekkist þegar í fornu máli en þá virðist merkingin vera ‘ganga eða sitja til borðs til þess að matast’ og ‘framreiða mált...
Jesús var veislumaður, en hvers konar mat borðaði hann? Hvernig voru veislur Ísaks eða kónganna Davíðs, Salómons og Heródesar? Vitum við eitthvað um mat Biblíunnar? Já, í öllum ritum hennar er eitthvað vikið að borðhaldi eða fæðutengdum efnum. Rannsóknir á Biblíunni, fornleifum og heimildum þessa tíma hefur fært o...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!